[Skrifað seinustu nótt við mikla þreytu og rugl-hugs. Ágæt blanda af mismunandi málefnum.]
Jæja, ágæta fólk.
Núna undanfarnar tvær vikur hef ég verið að keyra mér út í vinnunni, oft alveg til kl. 2 að klára hin margvíslegu verkefni. Auk þess þegar ég kem heim þá enda ég oftar en ekki í tölvunni og glápandi á skjáinn í kannski tvo tíma aukalega. Það eru nú ýmsar ástæður fyrir þessu athæfi mínu en engin nógu áhugaverð eða gild til þess að nefna hér.
Annars er ég í alveg flottum fíling og líður bara nokkuð vel. Fer fljótlega að hefja flutninga inn til Halldóru, eða íbúðina sem hún er að leigja ásamt vinkonu sinni og fleirum. Svo er ég eilítið byrjaður að lesa fyrir þessi litlu tvö próf hjá mér núna í ágúst. Svo stuttu eftir að þau eru búin byrja ég í námi við Kvikmyndaskóla Íslands. Þannig að það er nóg, nóg, nóg að gerast hjá mér, ásamt því að ég er held ég orðinn háður hæfileikakeppnisþáttum, sérstaklega seinustu tveim seríum af "Britain's Got Talent" ...
Já, hún Halldóra er búin að setja upp litla barnaland-síðu fyrir litla krílið í bumbunni:
januarbaun.barnaland.is
Að lokum langar mér að sýna ykkur æðislega fallegan "trailer" sem ég rakst á áðan. Þetta er leikur sem kemur út á Hrekkjavökunni (e. "Halloween") á þessu ári. Verð ég að segja að það á vel við hæfi

(sérstaklega í ljósi þess að hann hefur verið bannaður til sýninga í Bandaríkjunum, sem ætti að gefa ykkur hugmynd hvernig "trailer" þetta er).
27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=8,0,0,0" id="gtembed">
Skemmtið ykkur,
dengsinn
"Them as can do, has to do for them as can't. And someone has to speak up for them as has no voices."- Granny Aching [
Wee Free Men
by Terry Pratchett]